Atlas og WooCommerce

Tengdu WooCommerce við Atlas með WordPress-viðbót. Veldu hvort Atlas stýri öllum vörugögnum eða WooCommerce sjái um vörur en Atlas um verð og birgðir.

WooCommerce og Atlas, saman í einu söluferli

Atlas tengist WooCommerce með einni WordPress-viðbót. Þú velur hvort Atlas stjórni vöruskránni í heild eða hvort vörurnar séu skráðar í WooCommerce og verð og lager samstillt úr Atlas.

Tvær leiðir til að tengja verslunina

01

Atlas sér um vörurnar

Vörur eru skráðar og uppfærðar í Atlas: heiti, lýsingar, myndir, verð og birgðir. WooCommerce stofnar og uppfærir vörur sjálfkrafa út frá upplýsingum úr Atlas. Engin þörf er á að skrá vörurnar sérstaklega í WordPress.

Pantanir úr WooCommerce berast sjálfkrafa í Atlas og eru merktar afgreiddar í vefversluninni þegar reikningur hefur verið stofnaður í Atlas.

02

WooCommerce sér um vörulýsingarnar

Vörur, myndir og lýsingar eru skráðar í WooCommerce. Verð og lagerstaða koma úr Atlas svo hægt sé að samræma sölu og birgðir milli afgreiðslu og vefverslunar.

Pantanir berast áfram sjálfkrafa í Atlas og eru merktar afgreiddar í vefversluninni þegar reikningur hefur verið stofnaður í Atlas.

Sami lager í afgreiðslu og á netinu

Atlas heldur utan um birgðir og innkaup og WooCommerce nýtir þær upplýsingar samkvæmt valinni samstillingarleið.

Birgðir og innkaup

Birgjaskrá, lagerhreyfingar, lágmarksbirgðir, innkaupatillögur og birgðatalningar.

Sjálfvirkar pantanir

Pantanir úr vefversluninni berast í Atlas og tengjast reikningagerð og afgreiðslu.

Aðlögun að rekstri

Veldu hvor vöruskráin stýrir vörugögnum án þess að þurfa að halda utan um allt tvisvar.

Kynntu þér Atlas Sölukerfi

Sjáðu alla helstu eiginleika eða bókaðu kynningu á íslensku.