Atlas í rekstri
Reynsla fyrirtækja sem nota Atlas Sölukerfi í daglegum rekstri.

„Atlas hefur reynst okkur frábærlega. Viðmótið er einfalt og þægilegt, greiðsluferlið er mun skilvirkara.
Við skiptum yfir í Atlas úr eldra sölukerfi þar sem margir verkferlar voru tímafrekir og óþarflega flóknir. Verkefni eins og að útbúa og senda viðskiptayfirlit, sem áður tóku töluverðan tíma, eru nú afgreidd á örfáum sekúndum.
Við erum með fjölda viðskiptavina í reikningsviðskiptum og þar hefur Atlas skipt sérstaklega miklu máli. Kerfið sér sjálfkrafa um að stofna bankakröfur og bóka inn greiðslur á rétta viðskiptavini. Þetta var áður tímafrekt ferli sem hefur nú nánast horfið úr okkar daglega rekstri.
Atlas hefur því ekki aðeins einfaldað afgreiðsluna heldur sparað okkur verulegan tíma í daglegri umsýslu.“
Einar Ásgeir, Framkvæmdastjóri · Nesfoss ehf

„Við byrjuðum að nota Atlas sölukerfið til reynslu í einn mánuð og strax á fyrstu tveimur vikunum höfðum við fengið fjölmargar sérsniðnar lausnir sem hentuðu okkar rekstri og tengingin við vefverslunina okkar virkar mjög vel.
Atlas hefur einfaldað dagleg störf til muna, bæði við sölu og afgreiðslu, en ekki síður við dagsuppgjör, yfirferð mánaðarlegrar sölu og almennt utanumhald.
Það sem hefur komið okkur sérstaklega vel á óvart er hraðinn í kerfinu og hversu vel það tengist posunum okkar. Við þurfum ekki lengur að handslá greiðsluupphæðir inn í posana og höfum þannig losnað við mistökin sem fylgdu þeirri vinnu.
Það skiptir okkur líka miklu máli hversu fljótt hefur verið brugðist við óskum okkar um breytingar og nýja virkni.“
Heiðar, Stöðvarstjóri · Dekkjaland ehf
Kynntu þér Atlas Sölukerfi
Sjáðu alla helstu eiginleika eða bókaðu kynningu á íslensku.
